24.1.2009 | 11:27
Er ekki í lagi með fólk.
Ég vona að þetta blessaða fólk sem segir svona vitleysu þurfi sjálf aldrei að veikjast. Ég er ekki Sjálfstæðismaður og styð ekki þessa ríkistjórn en ég er manneskja og hef samúð með öllu fólki sem ekki gengur heilt til skógar. Við erum heppi að þessi kona er ekki í ríkisstjórn allavega væri illa komið fyrir sjúklingum ef þetta er hugsunarhátturinn. Skammastu þín.
|
„Ekki farin að finna til með honum ennþá“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:55 | Facebook


Athugasemdir
ég er samála þer..það er ekki i lagi með þetta fólk sem talar svona...og þetta fólk þarf á enhverjum STERKUM geðlyfjum að halda...þetta synir lika hversu margir mótmælendur eru rosalega VEIKIR i hausnum..að mínu mati þurfum við að stækka geðsjúkra hús og hjalpa svona fólki að ná hausnum i lag....ég óska geir h harrde alls hins besta i bata og guð verði með þer..
jon fannar (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 12:08
Ég óska Geir hins besta í veikindum hans og finn til samhugs með hans nánustu, en að því sögðu þá finnst mér alveg út í hött að maðurinn haldi áfram og það sama má segja með Ingibjörgu Sólrúnu. En ég vil líka benda á að fjölmargir íslendingar sem lenda í svona veikindum fá ekki næga þjónustu, lágar bætur og óaðgengilegt heilbrigðis- og tryggingakerfi vegna stefnu þessara flokka.
Það má alltaf færa rök fyrir öllu en það virðist afar erfitt að sleppa taumunum af valdi.
Gústaf Gústafsson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 12:34
Held að þeir sem segja svona, hafi ekki kynnst því af eigin raun hvernig tilfinning það er þegar að fjölskyldumeðlimur greinist með illkynja æxli og baráttuna sem að því fylgir, það er óhugnanleg tilfinning, og að fólk skuli geta sagt svona, "ég er ekki byrjuð að vorkenna honum" "eða hann var heppinn að greinast með þetta núna svo að hann þurfi ekki bla bla bla" eru eitthvað heimskir
ég finn mikið til með honum og öllum þeim sem greinast með illkynja krabbamein, þrátt fyrir að styðja ekki þess ríkisstjórn, enda hefur engin maður, hvort sem hann er í ríkissjtórn eða mótmælandi gert eitthvað í lífinu til þess að verðskulda svona veikindi .
Óskar (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 12:35
Samúð er tilfinning.
Er hægt að hneykslast á að einhver sýni ekki samúð?
Er hægt að hneykslast á að einhver elski ekki nógu mikið?
Er hægt að hneykslast á að einhver sýni ekki nægilegt traust?
Er hægt að skylda manneskju til að sýna þeim samúð sem hefur eyðilagt líf hennar og ættingja hennar?
Jón (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 13:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.